23. október 2012
Spennandi þróunarverkefni framundan hjá Landsneti
Risar flytja rafmagnið
Háspennulínumöstur hafa ekki þótt vera til sérstakrar prýði í íslenskri náttúru, þótt fáir efist um nauðsyn þeirra. Landsnet, sem annast flutning raforku og stjórnun raforkukerfisins á Íslandi, vinnur nú að spennandi þróunarverkefnum sem miða að framleiðslu mastra sem ætlað er að gleðja augað og falla betur að umhverfi sínu. Þær tvær hugmyndir sem lengst eru komnar gætu orðið til þess að stálrisar og fuglar muni halda uppi línunum sem flytja til okkar rafmagnið. Árið 2008 efndi Landsnet til samkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands þar sem kallað var eftir nýrri hönnun á háspennulínumöstrum og létu viðbrögðin ekki á sér standa – en alls bárust 98 gildar tillögur í keppnina. Fjórar af þessum tillögum voru svo valdar til frekari rannsókna og þróunar. Ólík sjónarmið mætast Þórarinn Bjarnason, verkefnastjóri framkvæmda hjá Landsneti, segir að fyrst hafi þurft að ganga úr skugga um að tillögurnar henti íslenskum aðstæðum og hefur verið unnið að því síðastliðið ár í nánu samstarfi við arkitekta og verkfræðinga, bæði innlenda og erlenda. „Eftir að arkitektinn eða hönnuðurinn hefur skilað frá sér hugmyndinni þá þurfa verkfræðingarnir að koma að verkefninu og þá kemur ef til vill í ljós að sumt gengur einfaldlega ekki upp miðað við íslenskar aðstæður, þar sem t.d. veðurálag hér er mun meira en víða annarsstaðar. Þessi ólíku sjónarmið þurfa þó að mætast og við viljum hafa arkitektana og hönnuðina með okkur í öllu ferlinu til að fagurfræðin haldist sem mest,” segir Þórarinn.
Kostnaður við gerð slíkra mastra er enn sem komið er meiri heldur en við byggingu hefðbundinna mastra, en að sögn Þórarins vinnur Landsnet nú hörðum höndum að því að lækka hann eins og mögulegt er. „Núna erum við að vinna að því að yfirfara hönnunina til að þetta geti verið raunhæfur kostur á móti þeim möstrum sem við erum þegar með, án þess þó að fórna útlitinu í of miklu mæli. Til að byrja með sjáum við þessa nýjung ekki fyrir okkur nema sem ef til vill stök möstur eða sem stutta kafla á nýjum leiðum og því verður kostnaðurinn ekki svo mikill þegar litið er á heildarkostnað línunnar,” segir Þórarinn. Sjá meira hér
Fyrri 83  84  85  86  87  88  89  90  91  92  93  Næst 

Eldri tölublöð
Öll blöð í vefútgáfu

Netútgáfa. Samhliða prentaða blaðinu verður einnig hægt að nálgast netútgáfu af blaðinu á slóðinni www.landogsaga.is. Greinarnar verða bæði í pdf og HTML formi sem gerir þér til dæmis kleift að senda þær áfram og nýta í markaðsskyni. Netútgáfan verður ítarlegri og verður hægt að senda inn efni sem sett verður á vefinn, umfram það efni sem er í blöðunum. Þessi vefur mun síðan halda áfram að vaxa og dafna.